Allir þeir sem hafa æft og keppt í handbolta vita að
agi er mikilvægur hluti af því að ná árangri. Þegar talað er um
aga er oftast verið að tala um hegðun sem þjálfara og leikmönnum finnst viðunandi.
Agi er með öðrum orðum ákveðnar vinnureglur og leikkerfi og
að fara eftir því sem sett er upp. Ef einhver ætlar að ná langt í hópíþrótt verður viðkomandi að skilja
aga og fara eftir þessum reglum. Án reglna er ringulreið á vellinum.
Agi fær okkur til þess að gera rétt og vel það sem við eigum að gera á æfingu. Ef
aginn er rétt ræktaður nær hann út fyrir æfingasalinn og inn á keppnisvöllinn og hjálpar okkur að ná árangri. Hann nær jafnvel að verða hluti af lífi okkar og þá er stundum talað um að hann sé
agi einstaklingsins eða
sjálfsagi. Hann hjálpar okkur til dæmis að borða rétt og hvílast nóg.
Til þess að ná framúrskarandi árangri á hvaða sviði sem er þarf
aga. Til þess að eiga gott líf þarf
aga.
Agi í handbolta er að mæta tilbúin og á réttum tíma á æfingar, tileinka sér það sem þjálfarinn segir og taka það með sér í leiki.
Aðeins með slíkri samstöðu fáum við það sem við viljum.
A team effort is a lot of people doing what the coach says